Aðalvalmynd

Auglýsing

Gleðilegt nýtt ár

10. janúar 2009 klukkan 16:07
Ég er í vinnunni og það er glatað! Það er nákvæmlega ekkert að gera, bara 4 búnir að koma hérna í allan dag og ekki taka matinn með sér. Getur verið dáldið þreytandi til lengdar, samt alveg ágætt að vera ekki að gera neitt. Hefði kannski átt að taka með mér einhverjar námsbækur til að læra í ... neee ;)
Skólinn er byrjaður aftur. Það hefur sína kosti og galla. Ég nenni valla að vera í skólanum, plús það að ég er bara í 13 einingum þannig að ég verð ábyggilega ennþá latari að vera í honum. Samt nice að vera búin kl. 1 eða hálf 12 flesta daga sko. Mér finnst ágætt að vera komin á Akureyri aftur, ókosturinn við það er kannski sá að útsölurnar eru byrjaðar og þá langar manni svo rosalega til að fara að kaupa sér eitthvað.. ;)
Árið 2009 svo gengið í garð. Mér finnst tíminn líða allt of hratt! Mér finnst bara mjög stutt síðan að maður var í grunnskóla og núna er ég komin á 4 ár í framhaldsskóla.. Hræðilegt, en þetta þýðir samt ábyggilega bara það að það er alltaf svo gaman hjá manni ;) Árið 2008 var ágætt bara. Ég ætla ekki að gera neinn sérstakan árspistil, hann verður án efa allt of langur hjá mér og ég mun örugglega taka fram allt of mörg atriði sem skipta engu máli ;) Ég skipti samt yfir í VMA á þessu ári, það finnst mér æði, jafnvel þótt að ég þurfi að vera einu ári lengur í framhaldsskóla.. Ég kláraði önnina auðvitað með style og komst í sauðburð sem var mjög fínt. Sumarið var svona semi.. Ég allavega komst að því að ég ætla ekki að gera þjóninn að ævistarfi ;) Ég gerði ekki mjög margt í sumar, djammaði smá og fór á unglingalandsmótið. Það var samt mjög gaman. Svo kom bara haust og skólinn byrjaði. Ekkert merkilegt að segja frá haustinu þannig lagað. Ég eyddi áramótunum á Varmalæk með Höskuldi og fór svo á ball með Svörtu sauðunum. Þar var frekar fámennt en án efa skemmtilegt samt.
Framundan er svo aðallega bara skóli. Ég fer á tónleika og skemmtun í kvöld. Ég ætla svo næstu daga að reyna að snúa sólarhringnum við eftir jólafríið, það gengur frekar brösulega. Svo er auðvitað möguleiki að maður kíki smá á útsölurnar ef maður frýs ekki í hel þarna á Akureyri í vikunni ;) Ætla líka að byrja í ræktinni í næstu viku, reyna að vera svoldið dugleg!
Jæja, ætli þetta sé ekki komið gott í bili bara :)
- Arnheiður

Jólin

27. desember 2008 klukkan 17:34
Gleðileg jól allir saman :)
Vá, hvað allt er búið að líða hratt síðustu daga! Mér fannst aðfangadagur bara ekkert smá stuttur, samt hafði ég ekkert svo mikið að gera allan daginn!
En ég fékk bara fínar jólagjafir! Fékk úr og skartgripi, helling af ilmdóti, snyrtitösku með nafninu mínu á og svo aðra snyrtitösku svona stóra, bók, geisladisk, 2 dvd, veski merkt nafninu mínu (það var eitthvað voðalega mikið í tísku að gefa okkur systkinunum merkt veski í jólagjöf núna;)), trefil, fondue, náttföt, belti og þá held ég að þetta sé komið :P Er bara mjög ánægð!
Annars er búið að vera slatti að gera síðustu daga bara. Jólaboð á jóladag, tónleikarnir fyrir Skarphéðinn í gær og við Hössi fórum svo á jólaball með bræður mína í dag :P Mjög skemmtilegt! Svo ætla ég að fara að horfa á strákana á fótboltamóti á morgun. Eitthvað að gerast bara alla næstu daga held ég. Það verður fínt þegar það er kominn 2. janúar, þá koma svona rólegir dagar þangað til að ég fer í skólann, eða ég held það, það er allavega ekkert komið á planið hjá mér þá. Það á samt örugglega eftir að vera gaman að fara á Akureyri aftur. Hlakka til að sjá nýju stundatöfluna mína af því að ég er að fara í svo fáar einingar. Vona að það verði ekki hellingur af eyðum inn á milli, frekar eyður á morgnana svo ég geti sofið út, nice! Svo er planið að vera ógeðslega dugleg í ræktinni eftir áramót.. Það verður að takast ;)
Jæja, ætli þetta sé ekki komið nóg.
-Arnheiður

Jólafrí!

16. desember 2008 klukkan 19:05
Ég elska jólafrí! Það er klárlega besta fríið, allavega eftir að ég hætti í MA! Það er svo geðveikt að þurfa ekki að vera stressuð yfir því að vera ekki búin að læra neitt fyrir prófin! Það er geðveikt að vera bara búin með þau og geta gert eitthvað skemmtilegt í staðinn Cool
Það sem er búið af fríinu er búið að vera ágætt, byrjaði á því að vinna í nokkra daga.. Það er auðvitað aldrei skemmtilegt en maður fær pening. Núna síðustu tvo daga er ég svo bara búin að vera í fríi. Bara búin að vera að jólastússast eitthvað sem er snilld. Fyrst þegar ég kom í jólafrí þá vissi ég ekkert hvað ég átti af mér að gera.. það var svo skrítið að vera kominn svona snemma í jólafrí! Yfirleitt voru bara nokkrir dagar í jólin og ég þurfti að byrja á fullu strax að pakka inn gjöfum og taka til og þetta allt, en núna er það allt bara búið að vera rólegt! Svo niiice Smile
Er að fara í klippingu og litun á morgun, hlakka svo til! Ætla samt ekkert að fara út í miklar breytingar, bara klippa smá og lita hárið mjög líklega bara aðeins dekkra en það er, er reyndar ekki alveg búin að ákveða það, en það kemur í ljós.
Ætla svo á Akureyri á föstudaginn með strákunum og ætla í búðir meðan þeir eru að spila á útskriftinni í VMA. Á eftir að kaupa smá í jólagjafirnar og svo langar mig lúmskt að versla smá föt Embarassed En það kemur í ljós!
Svo er það Daltonball á laugardaginn.. Það verður geðveikt! Elska Daltonböll, þeir eru svo skemmtilegir!
En þetta er komið nóg í bili!
- Arnheiður jólabarn

Byrja aftur?

08. desember 2008 klukkan 21:14
Jii, einhverra hluta vegna ákvað ég að blogga. Ég fæ alltaf svona einstaka sinnum einhverja löngun til að byrja að blogga aftur, en svo held ég að ég bloggi bara einu sinni, eða þá að ég veit ekkert hvað ég á að segja. Ég ætla nú samt að prófa núna..
Prófin eru alveg að taka enda, ég á eitt próf eftir, búin með 4. Búin að rústa þessu öllu samanWink Eða ganga ágætlega í öllu nema í enskunni, eða ég veit ekki alveg með hana, held ég hafi samt alveg náð henni. Búin að fá eina 9 og eina 7 og það eru einu eikunnirnar sem ég er búin að fá! Samt er ég í nokkrum próflausum áföngum, þannig að ég skil ekki alveg afhverju ég er ekki búin að fá út úr þeim! Þær hljóta samt að fara að tínast inn.
Síðasta prófið er á miðvikudaginn og svo JÓLAFRÍ! Ágætt að komast í smá frí frá skólanum, er komin með dáldið mikinn skólaleiða. Ég fer samt bara beint í það að vinna þegar ég kem heim. Verð samt ekkert mikið að vinna um jólin held ég, bara eitthvað til að fá smá pening. Það verður svo alveg slatti að gera um jólin; allt jólastússið auðvitað, afmælistónleikarnir hans Skarphéðins og svo hellingur af djammi Wink Mikilvægt að minna á það að Svörtu saðirnir verða að spila í Árgarði á ármótunum! Allir að mæta þangað!
Held að ég hafi þetta nóg í bili, ætla að fara að horfa á sjónvarpið.
- Arnheiður

Nenni ekki!

31. október 2007 klukkan 12:24
Ég nenni varla að blogga hérna lengur! Nota bara myspace síðuna núna.. bloggaði á henni núna áðan. Kannski kemur blogg hérna einhverntíman seinna.. kemur í ljós, þessi síða er allavega í pásu.

Myspace-ið: http://www.myspace.com/arnheidur89

Hressandi blogg...?

24. september 2007 klukkan 16:00
Verið viðbúin fyrir mikið tuð og mikið væl í þessu bloggi!

Tuð/væl nr.1
VETUR!? Það er EKKI kominn vetur, það getur enginn sagt mér að það sé kominn vetur. Eeeenn.. veðrið hérna á Akureyri sýnir það alveg ágætlega að það sé að koma vetur. Það er skítakuldi úti og það snjóar af og til.. reyndar er þetta haglél, en þetta er allt það sama! Svo eru fjöllin orðin hvít svo að bráðlega fara allir að tala um einhverjar skíða- eða brettaferðir.. það er ekki kominn tími til þess. Ég ætla að eiga afmæli áður en það er kominn vetur.. ég á alltaf afmæli áður en það er kominn vetur! Reyndar er oft búið að snjóa áður, en fyrsti vetrardagur er ekki fyrr en eftir afmælið mitt. Reyndar, þegar ég tala um snjó og afmælið mitt, þá man ég eftir einu skipti sem ég var að halda upp á það heima hjá mér að það varð allt ófært og þau sem gistu voru veðurtept heima hjá mér. Það var reyndar fjör ;)

Tuð/væl nr.2
Ég er að borða ostaslaufu.. og jeminn eini! Verri ostaslaufu hef ég ekki smakkað! ..langaði bara að deila því með ykkur!

Tuð/væl nr.3
Afhverju get ég aldrei valið alveg rétt. Ég er búin að vera að hugsa svooo mikið um það hvað ég ætla að verða síðustu daga. Það er búinn að vera einhver rosalegur kvíði hjá mér yfir því. Ég hef alltaf verið svoo róleg yfir þessu, hef alltaf bara hugsað að ég hefði alveg nægan tíma til að spá í þetta, en svo allt í einu um daginn fór ég bara eosa mikið að hugsa um þetta og hef eiginlega bara ekki hætt! Ég held samt að ég sé svona nokkurn veginn komin með það, en svo gæti það alveg breyst.. eins og í öll hin skiptin. Samt er þetta einhvern veginn eitthvað sem ég hef haft áhuga á vo lengi, að hluta til allavega! Hvað finnst ykkur að ég ætti að verða?

..er að hugsa um hvað ég á að tuða næst..

..oki ég finn ekkert..bless!

Nýr bíll

10. september 2007 klukkan 18:25
Jeminn eini! Mér leiðist svo í vinnunni að ég ákvað að blogga! Speees, já, ég veit. Sérstaklega af því að það er ekkert í neinu uppáhaldi hjá mér að blogga. Ég hef mikið verið að velta því fyrir mér að hætta með þessa síðu! Ég nenni aldrei að gera neitt fyrir hana eða neitt, kannski helst að ég setji inn einhverjar myndir. Samt einhvern veginn fæ ég mig aldrei til að hætta af því það koma svona moment þar sem að mig langar pínu að skrifa nokkur orð hérna, en ég meina það lesa hvort sem er ekkert margir þessi blogg mín þannig að hverju myndi það breyta?

Annars er alveg slatti að frétta. Var að vinna á mán. og þrið. í síðustu viku, en þurfti svo ekkert að vinna fyrr en í dag þannig að ég fékk nokkuð gott frí! Gerði mest lítið á miðvikudaginn og fimmtudaginn. Fór reyndar á fimmtudagskvöldið og náði í nýja bílinn minn!
Hlæjandi Vííí! Ég er semsagt búin að fá mér nýjan bíl og búin að losa mig við Rolluna!Ullandi Fékk mér Mitsubishi Lancer. Ég nenni ekki að setja inn mynd þannig að þið verðið bara að bíða eftir að sjá hann ef þið eruð ekki búin að því.
En já, svo á föstudaginn fór ég í réttir í Undirfellsrétt. Það var bara ágætt. Skellti mér svo í Dalsmynni um kvöldið til að hlusta á strákana (Hössa, Gunnar og Pálma) spila. Kom reyndar dáldið seint þannig að ég heyrði ekki mikið. Fór svo bara heim með Hössa og með honum í réttir daginn eftir. Nennti engan veginn að fara í Stafnsrétt þar sem að við áttum bara einhverjar 20 kindur þar og réttirnar þar eru alltaf búnar bara um svona 10 eða eitthvað álíka og byrja kl 7, þannig að það er yfirleitt lítið stuð þar. En það var rosa fjör þarna í Auðkúlurétt, fullt af fólki og bara fjör þar! Ég skellti mér svo bara á réttarball í Víðihlíð um kvöldið. Það var ágætt, hef samt alveg farið á skemmtilegri böll sko..
Sunnudaginn tók ég svo bara mest megnis í chill með Hössa þangað til að við fórum í fótbolta. Hef ekki farið í fótbolta svo ógeðslega lengi, var komin með fráhvarfseinkenni. Geeet ekki beðið eftir að komast á Akureyri og geta farið í fótbolta!

Er búin að fá stundatöfluna. Ég held að mér lítist bara ágætlega á hana. Er í 17 einingum, finnst það reyndar pínu lítið, en það er örugglega bara af því að ég var í 21 á síðustu önn. En þetta verður vonandi fínt. 6 dagar þangað til að ég fer norður. Er búin að vera að telja niður lengi af því að ég hlakka svo til! Verð með Sigurveigu í herbergi og við verðum á sama gangi og Hössi&Rúnar, Gunnar&Bjarni, Guðrún&Finna og Einar&Janus held ég, þannig að þar verður fjör!

Annars er lítið framundan annað en það. Verð held ég að vinna í dag og á miðvikudaginn. Veit svo ekki meir. Þarf að smala á laugardaginn þannig að það verður alveg slatti að gera. Þarf að fara að skipuleggja hvað ég ætla að taka með mér á Akureyri, því að ef ég þekki mig rétt þá á ég pott þétt eftir að gleyma einhverju! Kannski að ég fari bara að raða í bílinn strax!?

En ég held að þetta sé komið gott, ætla að fara að finna mér eitthvað að gera! Heyrumst.
    -Arnheiður!*

Ýmislegt

25. ágúst 2007 klukkan 12:15
Vá, ertu ekki að grínast!? Sumarið er að verða búið! Reyndar er það örugglega búið hjá þeim sem eru byrjaðir í skólanum, en ég byrja víst ekki í honum strax þótt að ég væri alveg til í það!
Það er allavega orðið nokkuð langt síðan að ég bloggaði síðast, reyndar er það ekkert svo langt af því að tíminn er búinn að líða svo hratt. Mér finnst allavega eins og verslunarmannahelgin hafi verið í gær.
Ég allavega skellti mér á Höfn um versló. Við fórum saman, Hössi, Gunnar, Sigurveig og ég, og vorum samferða Jóhönnu, Pálma og Lillý. Vá, ég hélt að við ætluðum aldrei að verða komin alla leið. Shit hvað þetta er langt! Ég held að við höfum verið 13 tíma á leiðinni. Reyndar held ég að við höfum stoppað á svona flestum mögulegum stöðum, allavega eftir að við vorum komin framhjá Reykjavík. Við reyndar stoppuðum þar í svona 2 klukkutíma. Vá, ég hélt samt að við myndum aldrei verða komin!
Það var samt rosa fjör þarna. Þegar við komum var nú eiginlega farið beint í það að sofa. Svo vorum við Sigurveig og Hulda bara að fylgjast með strákunum keppa og svoleiðis þegar þeir voru að keppa. Svo bara var verið að hanga og gera eitthvað, alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast þarna á kvöldin og svoleiðis! Ætluðum að fara í sund, en neinei, sundlaugin tekur ekki nema svona 30 manns, svo að þið getið ímyndað ykkur hvernig röðin var fyrir utan.. Annars veit ég ekki hvernig ég á að lýsa þessari helgi betur, nema á leiðinni heim fórum við hina leiðina, semsagt hjá Egilsstöðum og þar. Það tók miklu styttri tíma. Við stoppuðum bara aðeins á Egilsstöðum og svo á Akureyri og fengum okkur að borða á Greifanum. En í þetta skipti var Einar með okkur, en ekki Sigurveig.
Þriðjudaginn eftir versló tók ég mér bara frí, svaf fram að hádegi heima hjá Hössa, fór þá bara heim og var eitthvað að horfa á mynd og chilla eitthvað ein heima. Það var mjög fínt. Svo tók bara við vinna uppi í Blöndu.
Ég veit eiginlega ekki alveg hvað ég get sagt meira um hana. Ég er samt hætt að vinna þar núna. Ég ákvað að sleppa síðustu vikunni og fara að vinna með Grétu á Pottinum og pönnunni. Sem er mjög fínt, alltaf sama stuðið þar! Ég held samt að uppáhalds tímarnir okkar séu sófatímarnir!;)
Þar síðustu helgi, minnir mig, var íbúahátíð Húnavatnshrepps haldin í Dalsmynni. Þar var rosa fjör. Farið í skrítna og skemmtilega leiki, eins og stígvélakast. Ég veit ekki alveg hvort að ég legg í það að lýsa því, enda mjög flókið hvernig á að kasta þessum stígvélum (ég tek það fram að þetta var ekki þannig að þú varst með stígvélin á fótunum og sparkaðir þeim eins langt og þú gast, eins og ég hélt að það væri, en þá væri það kannski ekki kallað 'kast'). Svo var farið í dragkeppni, en ég skal lýsa henni til að forðast allan misskilning! Þá var það sko þannig að litlu krakkarnir voru settir á svona stóran [áburðarpoka eða eitthvað] og dregin einhverja ákveðna vegalengd á honum, semsagt 'dragkeppni' ;) Svo var matur, bigbandið spilaði, það var kveiktur varðeldur og hafður fjöldasöngur þar undir stjórn Hössa og Pálma, og svo var farið inn og sungið meira þar inni og þá bættist Gunnar inn í spileríið hjá þeim. Þannig að þetta var allt saman rosa fjör.
Jæja, ég held að þetta sé að verða komið gott. Framundan er bara vinna fram að skóla. Ég ætla að reyna að vinna mér inn einhvern slatta af pening svo að ég geti borgað þennan bíl sem ég er kannski að fara að fá mér. En meira af því þegar það verður ákveðið.
Heyrumst!

Sumarið er tíminn! ;)

28. júlí 2007 klukkan 22:46
Úff.. sumarið hleypur frammhjá manni! Það er að verða kominn ágúst og mér finnst eins og ég hafi verið að klára prófin í síðustu viku. Sem að þýðir að skólinn byrjar bara í næstu viku eða eitthvað.. ef við notum þessar líkingar. Ég á reyndar slatta eftir að mínu sumarfríi að því að minn skóli byrjar ekki fyrr en 17. september. Váá hvað ég vildi að við myndum byrja bara í lok ágúst og enda í maí, ég þoli ekki að byrja svona seint og enda svona seint, en það breytist væntanlega ekki í bráð..

Ég hef allavega haft nóg að gera í sumar. Hef eytt eiginlega öllum helgum einhverstaðar annars staðar en heima hjá mér. Ég hef ekki einu sinni komist á hestbak í sumar. Hefði reyndar getað gert það um síðustu helgi og þess helgi ef að ég hefði ekki tognað á ökkla. Mér er ennþá illt og ég treysti mér svona valla til að fara á hestbak. Ég er reyndar búin að stelast í fótbolta tvisvar, en það var reyndar bara til að standa í vörninni, ég get ekki sagt að ég hafi gert neitt rosa mikið. En ég sé ekki fram á það að ég geti spilað fótbolta næstu vikuna, sem er hræðilegt! ARG!

Annars er margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast, enda langt síðan! Ég man samt ekki allt en eitthvað samt. Um þar síðustu helgi var Húnavakan. Ég skellti mér bara heim til Hössa á föstudeginum og fór svo með honum og hans familíu á Blönduós á uppistandi hjá Erni Árnasyni og Óskari Péturssyni. VÁ, það var fyndið! Algjörir snillingar! Eftir það voru svo tónleikar fyrir utan félagsheimilið þar sem hinar ýmsu hljómsveitir sýndu hæfileika sína sem voru alveg ágætir. Svo fórum við Hössi og Gunnar bara aðeins á rúntinn og svo heim að sofa. Ég skutlaði svo Hössa og Gunnari upp í Húnavelli og ég fór svo bara niður á Blönduós og hitti Guðrúnu og Sigurveigu aðeins. Við fórum svo bara upp á Esso og fengum okkur að borða með Helgu, Jóni Gauta, Rúnari, Bjarna, Hlyni og Finnu (sorry ef ég er að gleyma einhverjum). Við brummuðum svo bara niður á fótboltavöll að horfa á leikinn, en ég var ekki lengi að því að ég fór að vinna kl. 5 á Pottinum og pönnunni og var þar til 10. Þá fórum við Einar bara heim í Mosfell, ég náði í Hössa, Gunnar og Grétu og við skelltum okkur á ballið á Blönduósi með smá viðkomu á Húnstöðum svo að Gréta gæti skipt um föt og við máluðum okkur svo saman. Ballið var bara ágætt. Geðveikt mikið af fólki þarna og ég var eiginlega fegin að ballið var í íþróttahúsinu en ekki félagsheimilinu eins og í fyrra! Eftir ballið fórum við bara heim til Bryndísar og Einars og fórum að sofa. Við Hössi vöknuðum svo snemma á sunnudeginum og brunuðum norður í Sand í Aðaldal, rétt hjá Húsavík. Amma átti sjötugsafmæli þann dag og ákvað að halda upp á það þar. Það var voða fjör að hitta allt fólkið og svona. Við fórum svo einhverntíman um 4 leytið heim.

Svoleiðis var nú sú helgi. Um síðustu helgi gerði ég eiginlega ekki neitt að því að ég gat ekkert hreyft mig útaf fætinum. Fór reyndar í smá heimsókn til Hössa á sunnudeginum. Annars er ég bara búin að vera að vinna og eitthvað þannig. Er svo að fara á ball á eftir á Hvammstanga og svo vinna á morgun á Blönduósi. Svo er Landsvirkjunarferðalag á miðvikudaginn, ætlum í rafting og eitthvað skemmtilegt. Svo verður brunað suður á fimmtudaginn.. örugglega alla leiðina á Höfn og ég ætla að eyða verslunarmannahelginni þar sem að verður svaka stuð!

En ég er farin.

Mikið að gera!

09. júlí 2007 klukkan 21:21
Hmm.. blogg? Ég held einhvern veginn að það sé kominn tími til! Er bara ekki búin að hafa neinn tíma til að blogga! Er náttla að vinna flesta virka daga, og svo er ég bara búin að vera á fullu að gera eitthvað allar síðustu helgar! Eða þá að ég er bara svo þreytt og löt að ég nenni ekki að blogga!

Allavega.. ég hlýt að hafa frá einhverju að segja víst að það er svona langt síðan síðast.. eða annars.. ég veit það ekki!? Ég þjáist af skammtímaminni!

Þar, þar síðustu helgi og þar síðustu helgi var ég uppi á heiði með Hössa & pabba að bera á. Heh.. það var stuð! Hékk mest bara inni í vél hjá Hössa og spjallaði við hann, en það var líka bara stuð. Þess á milli var ég annað hvort lesandi eða sofandi inni í bíl. Fyrri helgina fórum við samt heim um kvöldið og komum aftur morguninn eftir (það var á laugardegi & sunnudegi) en seinni helgina kom ég þarna á föstudeginum og gisti þarna fram á sunnudag. Það er sko stuð að vera í útilegu upp á heiði ;)

Svo núna síðustu helgi var nóg að gera. Á föstudaginn var ég hjá Hössa, eða ég fór til hans á fimmtudagskvöldið og fór svo á föstudagsmorguninn í klippingu og litun. Litaði hárið á mér dáldið dekkra. Held að ég sé bara nokkuð ánægð með það! Fannst það aðeins of dökkt fyrst, en ég er alveg að venjast því núna! Svo fór ég upp í Húnaver seinna um daginn til að búa til ratleik með Rúnari. Vá hvað það var tímafrekt! Ég bjóst við því að þetta myndi ekki taka svona langan tíma.. en ég var sko komin þarna kl. 2 og við vorum held ég ekki búin fyrr en eitthvað rúmlega 5 hálf 6! En þá fór ég bara heim og svaf pínu og tók því svo bara rólega um kvöldið þangað til að ég fór aftur að sofa.
Svo á laugardaginn fór ég upp í Húnaver til að gera allt klárt fyrir hlaupið, ratleikinn og boðhlaupið sem átti að vera (Húnaver átti sko 50 ára afmæli þenan dag fyrir þá sem ekki vita). Dagurinn tókst svo bara voða vel og það var svo smá skemmtun um kvöldið og ball á eftir. Ég veit ekki alveg hvort að þetta var mjög fjörugt ball, en samt alveg ágætt! Hössi kom svo heim með mér eftir það og gisti hjá mér og ég fór svo með honum og Einari & Gunnari á Vindheimamela á hestamót daginn eftir. Það var bara fjör. Pabbi þeirra var að keppa og fleiri sem þeir þekkja þannig að það var bara gaman að fylgjast með því. Við reyndar sofnuðum öll þarna einhvern tíman í bílnum.. örugglega mjög skemmtileg sjín fyrir þá sem að löbbuðu framhjá ;) Hehe! Svo fórum við í mat í Varmalæk eftir mótið og svo beint á fótboltaæfingu og svo fór ég bara upp í Virkjun.

Annars er ég bara að vinna og vinna, sem er bara fínt. Verð í eldhúsinu þessa vikuna og svo skelli ég mér á Húnavökuna um næstu helgi og í afmæli til ömmu. Þannig að það verður nóg að gera þá helgi svo að ég blogga örugglega ekki mikið þá! Við verðum bara að sjá til hvenær það verður gert næst. Ég er allavega hætt í bili!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...